Bókhald & skattskil fyrir lítil fyrirtæki, verktaka og einyrkja

Aðstoð við bókhald, ársreikninga og skattframtöl — á föstu og lágu verði.

Ég sé um bókhaldið, ársreikninginn og skattframtalið fyrir þig, svo þú getir einbeitt þér að rekstrinum. Allt er gert upp einu sinni á ári, ekki mánaðarlega, fyrir eitt fast verð.

Þjónustan

Allt sem litla fyrirtækið þitt þarf í bókhaldinu

01 — Bókhald

Bókhald

Bókað er fyrir allt árið í einu lagi — færsla reikninga, launabókhald og afstemmingar, svo staðan þín er ljós þegar á þarf að halda.

02 — Ársreikningur

Gerð ársreiknings

Ársreikningur unninn í samræmi við lög og reglur, tilbúinn til skila og undirritunar.

03 — Skattframtal

Skattframtal fyrirtækja

Framtal fyrirtækisins skilað réttilega og á réttum tíma — engar áhyggjur af fresti.

Kristófer Máni Friðriksson
Um mig

Ég heiti Kristófer Máni Friðriksson, viðskiptafræðingur með meistarapróf (MAcc) í endurskoðun og reikningsskilum. Ég hef unnið á endurskoðunarskrifstofu og í uppgjörum og reikningsskilum hjá stórri samstæðu — því hef ég mikla þekkingu á bókhaldi, ársreikningagerð og skattframtölum.

Verðskrá

Fast verð

Verðdæmi hér að neðan, aðlagað að umfangi rekstrar. Endanlegt tilboð er alltaf gert eftir stutt samtal.

Verðdæmi 1

Lítill sem enginn rekstur

Enginn vsk, engin laun

30.000 kr./ári, án vsk
Senda fyrirspurn
Verðdæmi 3

Lítill rekstur

Vsk og laun

90.000 kr./ári, án vsk
Senda fyrirspurn
Innifalið í öllum liðum
Bókhald Ársreikningur Skattframtal Skil á öllum nauðsynlegum gögnum

Gott bókhald á ekki að þurfa að kosta stórfé

Lítil fyrirtæki eiga sama rétt á vandaðri þjónustu og þau stóru — bara í minna umfangi og á verði sem hentar litlum rekstri.

0 kr. uppsetningargjald Fast verð — engir óvæntir reikningar Sveigjanlegt — engin binding

Tilbúin/n að létta á bókhaldinu?

kristofermanifr@gmail.com
sími: 771-9909
Reykjavík, Ísland
Senda fyrirspurn